Á fimmtudaginn næsta er grænn dagur hjá okkur í Fossakot. Við hvetjum alla sem vilja til að mæta í grænum fötum. Við hlökkum til að bralla ýmslegt skemmtileg í grænu þema.
Allt er vænt sem vel er grænt.

Á fimmtudaginn næsta er grænn dagur hjá okkur í Fossakot. Við hvetjum alla sem vilja til að mæta í grænum fötum. Við hlökkum til að bralla ýmslegt skemmtileg í grænu þema.
Allt er vænt sem vel er grænt.
Við minnum á starfsdaginn okkar, föstudaginn 4.febrúar. Þann dag er leikskólinn lokaður.
Á miðvikudaginn næsta er vasaljósadagur hjá okkur í Fossakoti. Í ljósi aðstæðna mega börnin ekki koma með vasaljós í leikskólann. Við ætlum samt að gera okkur góðan dag og skoða allskonar skemmtilega skugga með vasaljósinu sem er til í leikskólanum.
Í ljósi aðstæðna hefur verið ákveðið að fresta starfsdeginum okkar sem átti að vera á föstudaginn næsta 7. janúar.
Leikskólinn verður því opinn á föstudaginn 7. janúar og áætlað að leikskólastarfið verði hefðbundum hætti.
Ástæða þess er að nú störfum við mikið hólfaskipt og teljum við óábyrgt að blanda öllu starfsfólki saman þar sem skipulag starfsdagsins okkar býður ekki upp á hólfaskiptingu, þá er einnig hluti starfsfólks í einangrun og sóttkví.
Áætlað er að starfsdagurinn verði föstudaginn 4. febrúar nk. svo gott er að gera ráðstafanir í tíma þar sem þann dag verður leikskólinn lokaður.
Við minnum á starfsdaginn okkar, föstudaginn 7.janúar. Þann dag er leikskólinn lokaður
Kæru fjölskyldur.
Við í leikskólanum Fossakoti óskum ykkur öllum gleðilegrar hátíðar og farsældar á komandi ári með ósk um notalega samveru og hvíld yfir hátíðirnar.
Við viljum um leið þakka fyrir ánægjulegt samstarf á árinu sem er að líða.
Við hlökkum til að taka á móti nýja árinu og öllum þeim tækifærum sem það býður upp á í leik og starfi.
Í næstu viku er okkar árlega jólabíó og skiptist eins og hér segir:
Mánudagur 13.des: Litlakot
Þriðjudagur 14.des: Krílakot
Miðvikudagur 15.des: Krakkkakot
Fimmtudagur 16.des: Stórakot
Þann dag sem jólabíóið er ætlum við að eiga einstaklega notalegar stundir saman og mega öll börn sem vilja mæta í náttfötum og með einn bangsa með sér.
Við minnum alla á að það er rauður dagur á morgun, föstudag.
Allir sem vilja mega mæta í rauðum fötum og við ætlum að bralla ýmislegt jólatengt og ekki með rauðum lit