Deildir Korpukots

Í Korpukoti eru fimm deildir, Sælukot, Sunnukot, Bjartakot, Fagrakot og Geislakot.

Sælukot, Sunnukot og Bjartakot eru ungbarnadeildir og taka við börnum á aldrinum 10-18 mánaða. Börnin dvelja, í flestum tilfellum, á þessum deildum til tveggja ára aldurs. Þegar börn eru í kringum tveggja ára tekur Fagrakot á móti þeim og þau ljúka síðan leikskólagöngu sinni á Geislakoti.

Á öllum deildum er leikurinn í forgrunni enda hann helsta leið barna til að læra. Með rannsóknum og leik öðlast börnin nýja reynslu sem eflir allan þeirra þroska.

Einkunnarorð leikskólans eru: það er leikur að læra. Þau eru byggð á því að börnin læri í gegnum leik og störf og að í leik barna eigi sér stað mikið og merkilegt nám í formi rannsókna og reynslu. Leiðarljós okkar er að skila til þjóðfélagsins námsfúsum og lífsglöðum börnum með jákvætt viðhorf til samfélagsins. Börnum með sterka sjálfsmynd og heilbrigða siðferðiskennd. Börnum sem bera virðingu fyrir sjálfum sér og samfélaginu.