Í morgun héldum við skemmtilega sumarhátíð í leikskólanum og vorum einstaklega heppin með veðrið. Sólin skein og börnin nutu sín til fulls úti í fjölbreyttum leikjum og verkefnum.
Á svæðinu voru ýmsar stöðvar sem vöktu mikla lukku, meðal annars andlitsmálning, hárgreiðslustöð, sullstöð, krítarstöð og málningarstöð. Einnig var vinsæl „slökkva eld“ stöð þar sem börnin fengu að nota vatnsbyssur til að slökkva eld sem hafði verið krítaður á vegg og jörð. Þar ríkti mikil gleði og spenna.
Eftir fjörugan morgun var síðan boðið upp á pylsupartí í hádeginu þar sem allir gátu sest niður og notið góðrar stundar saman.
Dagurinn heppnaðist afar vel og það var dásamlegt að sjá börnin gleðjast, leika sér og njóta samverunnar. Við þökkum öllum fyrir yndislegan dag og hlökkum til fleiri skemmtilegra stunda saman í sumar. ☀️🌈🎨💦🌭















