Á Krummakoti dvelja börn á aldrinum 2–3 ára. Þar leggjum við áherslu á að skapa hlýlegt og uppbyggilegt umhverfi þar sem börnin fá tækifæri til að eflast í leik, námi og félagslegum samskiptum.
Í starfinu er unnið markvisst með málörvun í gegnum Lubbastundir (Lubbi finnur málbein) og félags- og tilfinningaþroska með Blæ vináttuverkefni. Jafnframt er lögð rík áhersla á að efla sköpunargleði barnanna með fjölbreyttum verkefnum þar sem ímyndunarafl, forvitni og frumkvæði fá að njóta sín.
Útivera og tengsl við náttúruna eru mikilvægur þáttur í daglegu starfi deildarinnar. Börnin fá tækifæri til að kanna umhverfi sitt, njóta hreyfingar utandyra og læra að bera virðingu fyrir náttúrunni. Einnig leggjum við áherslu á gildi eins og virðingu, umhyggju og tillitsemi, þar sem börnin læra að taka tillit til annarra og mynda jákvæð og traust samskipti.
Markmið okkar er að börnin upplifi öryggi, gleði og vellíðan á Krummakoti og fái að vaxa og dafna í umhverfi sem styður við alhliða þroska þeirra.



