Aðlögun

Að byrjar í leikskóla er ný reynsla fyrir barnið og foreldra þess. Allt er ókunnugt og því mikilvægt að staðið sé vel að verki þegar kemur að aðlögun.
Á meðan á aðlögun stendur er gott að foreldrar kynnist starfsfólki deildarinnar og starfi leikskólans. Með því er lagður góður grunnur að framtíðinni.
Aðlögun tekur nokkra daga og miðasta fjöldi þeirra alltaf við barnið sjálft, aðlögunardagar eru samt sem áður aldrei færri en fimm og hver dagur hefur ákveðinn tilgang.

Gert er ráð fyrir að aðeins eitt foreldri taki aðlögun með barninu.

Dagur 1 Barn og foreldri mæta kl. 9:15 og eru saman í leikskólanum til kl. 10:15
Dagur 2Barn og foreldri mæta kl. 9:15 og eru saman í leikskólanum til kl. 10:30. Foreldri gefur barninu hádegismat í leikskólanum
Dagur 3 Barn og foreldri mæta kl 9:00. Foreldri kemur inn með barninu og kveður það kl 9:15 þegar ávaxtastund hefst. Barnið er sótt kl. 10:30
Dagur 4Barn og foreldri mæta kl. 9:00 og foreldri kveður barnið strax og fer. Barnið fær morgunmat og er sótt kl. 11:00
Ef vel gengur þá borðar barnið hádegismat og er sótt kl 11:40
Dagur 5Barn og foreldri mæta kl. 9:00 0g foreldri kveður strax og fer. Barnið fær morgunmat og er sótt klukkan 11:45.

Ef vel gengur fer barnið í hvíld og þá sótt um leið og það vaknar.

Hafa ber í huga að þetta er aðeins til viðmiðunar. Ykkur er velkomið að hringja og athuga hvernig gengur með aðlögun alla daga.

Við hringjum alltaf ef við teljum að börn þurfi að fara fyrr heim þá daga sem aðlögun fer fram, við viljum frekar hafa þau stutt og þau njóti sín.