Kríukot

Kríukot er yngsta deild leikskólans þar dvelja börn frá um 12 mánaða aldri í u.þ.b. eitt ár þar til Krummakot tekur við þeim. Á Kríukoti leggjum við áherslu á að skapa öruggt, hlýlegt og traust umhverfi þar sem hverju barni líður vel og fær tækifæri til að þroskast á sínum eigin forsendum.

Í daglegu starfi er rík áhersla á leik, skynörvun og fjölbreytt verkefni sem styðja við alhliða þroska barnanna. Við vinnum markvisst með málörvun í gegnum Lubbastundir (Lubbi finnur málbein) og leggjum jafnframt áherslu á félagsfærni og jákvæð samskipti með Blæ vináttuverkefni.

Börnin fá daglega tækifæri til að efla bæði gróf- og fínhreyfingar með fjölbreyttum leikjum, hreyfingu og skapandi starfi. Markmið okkar er að börnin upplifi gleði, öryggi og vellíðan á meðan þau læra og þroskast í gegnum leik og samskipti.