Við minnum á starfsdaginn okkar sem er föstudaginn 8.sept.
Þann dag er leikskólinn lokaður.
English below
We remind you of our staff day, which is friday September 8th. On that day the kindergarten is closed.
Við minnum á starfsdaginn okkar sem er föstudaginn 8.sept.
Þann dag er leikskólinn lokaður.
English below
We remind you of our staff day, which is friday September 8th. On that day the kindergarten is closed.
Kæru fjölskyldur.
Í dag er síðasti dagurinn okkar fyrir sumarfrí.
Við vonum að þið njótið samverustunda og sólríkra daga næstu vikur.
Leikskólinn opnar aftur þann 10. ágúst kl. 9:00
Gleðilegt sumar.
Á föstudaginn, þann 23. júní verður sumarhátíð Korpukots haldin. Þá verður heldur betur fjör hjá okkur í leikskólanum, það verða pylsur í hádegismat, hoppukastalafjör og Benedikt Búálfur mun kíkja í heimsókn til okkar í boði foreldrafélagsins. Við hlökkum mikið til. Sumarhátíðin okkar er foreldralaus skemmtun.
Þær Birgitta Ýr og Máney Sól útskrifuðust frá Borgarholtsskóla á fimmtudaginn sl. og eru því hvor um sig núna leikskólaliðar.
Við óskum þeim til hamingju með áfangann.
Það er alltaf gaman þegar sterkur hópur eflist enn frekar.
Í dag, 5. maí sneri Blær við öðru krónublaði á lífsgildablóminu okkar og í ljós kom kurteisi.
Kurteisi er að hlusta á aðra og ekki grípa fram í, hún sýnir öðrum að það sem þeir hafa að segja er okkur þýðingarmikið og jafn mikilvægt og það sem við höfum að segja. Mikilvægt er að sýna ollum einstaklingum kurteisi, þannig virðum við náungann.
Við minnum á starfsdaginn okkar, föstudaginn 19.maí
Þann dag er leikskólinn lokaður.
Kæru fjölskyldur.
Við hér í Korpukoti viljum óska ykkur öllum gleðilegs sumars og um leið þakka fyrir ánægjulegt samskipti á skólaárinu sem er nú brátt á enda komið.
Við hlökkum til að taka á móti sumrinum með börnunum ykkar, með sól í hjarta og bros á vör.
Kæru fjölskyldur.
Við í Korpukoti sendum ykkur öllum hlýjar páskakveðjur og vonum að þið eigið saman góðar stundir í fríinu.
Leikskólinn er lokaður á skírdag, föstudaginn langa og annan páskum.
-Sjáumst hress þann 11.apríl
Í dag, 3. mars sneri Blær við öðru krónublaði á lífsgildablóminu okkar og í ljós kom virðing.
Allir eiga skilið að njóta virðingar. Virðing felur í sér að virða reglur heima, í skólanum og annars staðar. Virðing býður upp á lýðræðisleg vinnurögð þar sem allir geta tjáð skoðanir sína óhræddir. Að sýna virðingu felur einnig í sér sjálfsvirðingu. Tal og framkoma sem einkennist af virðingu veitir fólki þá reisn sem því ber.
Á morgun, miðvikudag, er öskudagurinn. Þá mega þau börn sem vilja koma í búningum, náttfötum eða kósýgalla. Það er nú bara þannig að það er misjafnt eftir börnum hvort þau vilji vera í búningum eða ekki á þessum degi. Það sem mestu skiptir er að þeim líði vel og skemmti sér með vinum sínum.